Gull-Elsa - E. Marlitt

Gull-Elsa

von E. Marlitt

  • Veröffentlichungsdatum: 2023-01-04
  • Genre: Klassiker

Beschreibung

Elísabet Ferber elst upp í höfuðborg Þýskalands en flyst sem ung kona með foreldrum sínum á herragarð þar sem faðir hennar hefur fengið vinnu hjá herragarðseigandanum. Elísabet, sem er gjarnan kölluð Gull-Elsa enda bæði fögur og dyggðug, verður fyrir aðkasti kvennanna á heimilinu, sem eru afbrýðissamar út í fegurð hennar og hæfileika sem píanóleikara. Gull-Elsa upplifir einnig ástina í fyrsta skipti, en þarf að finna henni stað í lífi sínu alveg eins og hún finnur sér stað í samfélagi herragarðsins.Bókin naut mikilla vinsælda á Íslandi áður fyrr sem hluti af Sögusafni heimilanna.Persónurnar og notkun á tungumáli í verkinu endurspegla ekki skoðanir útgefandans. Verkið er gefið út sem sögulegt skjal sem inniheldur lýsingar á tíðaranda og skynjun manna sem tíðkaðist á tímum skrifanna.Serían samanstendur af eldri sögum sem eiga það sameiginlegt að hafa verið eftirsóttar til lengri tíma í flokki rómantískra bókmennta. Bækurnar henta einstaklega vel þegar þú vilt gleyma þér í rómantík og ævintýrum gamla tímans.